Novator stærsti hluthafi í finnska símafyrirtækisins Elisa segist vilja tvo menn í stjórn félagsins en með því móti getur Novator knúið fram breytingar í rekstri Elisa.

Í frétt á vef Dow Jones segir að Novator eigi 10,1% hlut í Elisa.

Haft er eftir Björgólfi Thór Björgólfssyni í fréttinni að of snemmt sé að segja hverjir komi til með a sitja í stjórn Elisa en að hans mati verða þeir að hafa mikla reynslu af viðskiptum og þekkingu á fjarskiptatækni.