MP banki og Icelandair hafa undirritað samning um aukin fríðindi fyrir korthafa MP banka. Fram kemur í tilkynningu að í samstarfinu felist m.a. að MP banki eykur Vildarpunktasöfnun korthafa umtalsvert og veita kortin nú Vildarpunkta af allri innlendri veltu auk þess sem tiltekin kort munu einnig veita Vildarpunkta af erlendri veltu. Áður náði söfnun Vildarpunkta einungis til hluta söluaðila innanlands.

Allir korthafar vildarkorta munu auka Vildarpunktasöfnun sína þó mismikið eftir tegundum korta. Í samningnum felst einnig samstarf við Icelandair Golfers og veita viss kort aðgang að Saga Lounge. Aukin fríðindin verða kynnt fyrir Vildarkorthöfum MP banka á næstu dögum og taka gildi frá og með kortatímabilinu sem hefst 22. ágúst.