Það hefur verið kjörin ný stjórn í Félagi fasteignasala. Kjartan Hallgeirsson hefur verið kjörinn formaður og Hannes Steindórsson varaformaður, að því er segir í fréttatilkynningu.

„Í Félagi fasteignasala eru rúmlega 300 fasteignasalar. Félagið vinnur ötullega að því að efla fagleg vinnubrögð og öryggi í fasteignaviðskiptum og heldur úti öflugri sí/endurmenntun fyrir félagsmenn sína,“ segir í tilkynningu.

Stjórn Félags fasteignasala er skipuð á eftirfarandi hátt:

  • Kjartan Hallgeirsson formaður
  • Hannes Steindórsson varaformaður
  • Þóra Birgisdóttir gjaldkeri
  • Monika Hjálmtýsdóttir ritari
  • Kristín S. Sigurðardóttir meðstjórnandi
  • Þórey Ólafsdóttir varamaður
  • Aron Eiríksson varamaður
  • Gétar Jónasson framkvæmdastjóri