Á aðalfundi Samtaka verslunar og þjónustu, sem er nýlokið, var kosin ný stjórn.

Hana skipa: Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu eignarhaldsfélags., sem er formaður, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, Björn Árni Ágústsson, framkvæmdastjóri MEBA, Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, Finnur Árnason, framkvæmdastjóri Haga, Guðmundur Arason, framkvæmdastjóri Securitas og Ingvi I. Ingvason, framkvæmdastjóri Rafha.

Úr stjórninni gekk Hjörleifur Jakobsson fyrrverandi forstjóri Olíufélagsins en nýr í stjórn í hans stað er Ásbjörn Gíslason.