Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað nýja stjórn Íbúðalánasjóðs samkvæmt lögum um húsnæðismál.

Nýr formaður stjórnarinnar er Katrín Ólafsdóttir, lektor í Háskólanum í Reykjavík, en hún tekur við formennsku af Hákoni Hákonarsyni. Stjórn Íbúðalánasjóðs er skipuð eftirtöldum fulltrúum:

Katrín Ólafsdóttir, lektor, formaður

Söfn Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, varaformaður

Jóhann Ársælsson, fyrrverandi alþingismaður

Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður

Elín R. Líndal, framkvæmdastjóri

Til vara:

Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi

Henný Hinz, hagfræðingur

Steinar Harðarson, verkfræðingur

Sigríður Á. Andersen, héraðsdómslögmaður

Hákon Hákonarson, vélvirki