Boðað hefur verið til aðalfundar Íslandsbanka í höfuðstöðvum bankans við Kirkjusand klukkan tvö í dag. Boðunin ber nokkuð brátt að og á að kjósa nýja stjórn yfir bankann.

Tveir íslenskir einstaklingar og fjórir útlendir munu skipa nýju stjórnina. Einnig munu nýjasta uppgjör bankans verða lagt fram.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl. hefur gegnt formennsku í stjórn Íslandsbanka.