Nýherji styrkir stöðu sína á sviði hýsingar og sérhæfðra hugbúnaðarlausna Nýherji hf. lauk í dag samningum um kaup á 59,4% hlut Straums í upplýsingatæknifyrirtækinu TM Software hf.  Nýherji hefur jafnframt tryggt sér kaup á bréfum FL Group hf. og Tryggingamiðstöðvarinnar hf.  og verður virkur eignarhlutur Nýherja í TM Software 77,9% eftir kaupin, segir í fréttatilkynningu.

Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu Nýherja samstæðunnar á sviði rekstrarþjónustu, hýsingar og þróunar sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. Kaupin eru mikilvægur áfangi í þróun  Nýherja sem lausna-, ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni en yfir helmingur tekna samstæðunnar verður af þess konar starfsemi, segir í fréttatilkynningunni.

Eignir Theriak Medication Management seldar þriðja aðila TM Software er í forystu hérlendis á sviði hýsingar og sértækra hugbúnaðarlausna og eru mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins á meðal viðskiptavina fyrirtækisins. TM Software er móðurfélag Skyggnis, Origo, Vigor, eMR, IPT og Theriak Medication Management.

Eign TM Software í Theriak Medication Management hefur verið seld og taka nýir eigendur við hugverkaréttindum, starfsfólki og rekstri félagsins.  Tekjur TM Software námu um 2,4 milljörðum króna árið 2007 og EBITDA um 200 milljónum króna.  Nettó vaxtaberandi skuldir TM Software námu um 660 milljónum króna  og eru starfsmenn um 230 talsins.   Samanlögð velta Nýherja og TM Software er því nærri 14 milljarðar króna og fjöldi starfsmanna í fullu starfi er um 730.  Eftir sameiningu verður Nýherji í hópi leiðandi upplýsingatækni- og ráðgjafarfyrirtækja á Norðurlöndum, segir í fréttatilkynningunni.

Kaupverð hlutabréfa 1.406 milljónir króna

Kaupin miðast við að heildarverð hlutabréfa í TM Software sé 1.406 milljónir króna og er greiðsla á 77,9% hlutafjár í TM Software því ríflega 1.095 milljónir króna. Nýherji ráðgerir að gefa út nýtt hlutaféað  nafnverði allt að 65 milljónir króna til að fjármagna kaupin að meginhluta. Hlutafé verður boðið til kaups á genginu 22. Greiðsla fyrir þau 77,9% sem keypt hafa verið er þannig að 39% eru greidd með hlutabréfum í Nýherja en 61% í peningum. Kaupin eru háð fyrirvaralausu samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Allt að 65 milljónir nýrra hluta gefnir út til að fjármagna kaupin

Áformað er að verja allt að 25 milljónum að nafnverði hlutafjár til að greiða hluthöfum í TM Software en allt að 40 milljónir verða boðnar núverandi hluthöfum í Nýherja. Er ráðgert að hlutafjárútboði Nýherja verði lokið fyrir 1. mars.  Eftirstöðvar kaupverðsins  verða fjármagnaðar með  lánsfé frá Kaupþingi. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar eftir sameiningu og hlutfjáraukningu verður um  35% en var hjá Nýherja í lok síðasta árs um 31%.  Nýherji mun bjóða öðrum hluthöfum í TM Software að selja sinn hlut  á sömu kjörum og þeir sem þegar hafa samið um sölu sinna hluta eða gegn staðgreiðslu.

"Stigið mikilvægt skref í að umbreyta félaginu"

„Með kaupum Nýherja á TM Software er stigið mikilvægt skref í að umbreyta félaginu í lausna- og þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni og ráðgjafar," segir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, um kaupin á TM Software, í fréttatilkynningunni. "Eftir kaupin má rekja yfir 50% tekna samstæðunnar til sölu á hugbúnaðarlausnum, ráðgjöf og þjónustu .  Kaupin styrkja þjónustu okkar til muna m.a. á sviði rekstrar- og hýsingarþjónustu, veflausna og samþættingar á hugbúnaðarkerfum."