Kristinn Már Gunnarsson kaupsýslumaður í Þýskalandi hefur keypt þriðjungshlut í Sportís ehf., framleiðanda Cintamani útivistarfatnaðarins. Kaup Kristins felast í hlutafjáraukningu sem ætlað er að styðja sókn Cintamani á markaði í Þýskalandi.

Í tilkynningu segir að auk hlutafjáraukningar í Cintamani leggur Kristinn Már til þekkingu sína og tengsl við þýska smásölumarkaðinn. Arctic Group, fyrirtæki Kristins í Dusseldorf, rekur 230 fataverslanir og verslunareiningar víðsvegar um Þýskaland, með vörumerkjum á borð við Oasis, Karen Millen og Coast. Kristinn Már hóf verslunarrekstur í Trier í Þýskalandi fyrir 20 árum, með fyrstu Vero Moda búðinni þar í landi. Velta Arctic Group er sögð hafa verið 4,6 milljarðar króna árið 2009.

Skúli Björnsson og Sindri Sindrason hafa verið aðaleigendur Sportís ehf.

„Cintamani vörumerkinu hefur gengið mjög vel hér á landi. Útlendingar eru ekkert síður hrifnir af vörum okkar en Íslendingar, þannig að við sjáum mikla möguleika erlendis. En til að komast inn á slíka markaði þarf þekkingu, aðstöðu og að njóta trausts. Kristinn Már hefur þessi sambönd og meira til, þannig að aðkoma hans opnar klárlega dyr inn á Þýskalandsmarkað. Þaðan getum við svo horft til fleiri markaða á meginlandi Evrópu eftir því sem fram sækir,” er haft eftir Skúla í tilkynningu.

„Mér sýnist óhætt að gera hóflegar væntingar um árangur Cintamani í Þýskalandi. Þjóðverjar eru mikið útivistarfólk, sem sést á því að útivistarmarkaðurinn veltir 250 milljörðum króna árlega í þessu 80 milljón manna samfélagi. Uppruni Cintamani á Íslandi skapar mikla sérstöðu, en að sjálfsögðu þarf hönnun og gæði vörunnar að standast kröfur kaupenda,” segir Kristinn Már Gunnarsson í tilkynningu vegna aðkomu hans að Sportís.

Hlutafjáraukningin í Sportís ehf. verður meðal annars nýtt til frekari vöruþróunar, bæði fyrir íslenskan og þýskan markað. Leitað verður samstarfs við fleiri fatahönnuði, vefsíða aðlöguð og útflutningur undirbúinn.

Til að byrja með er stefnt að því að opna níu Cintamani verslunareiningar í verslunarmiðstöðvum víðs vegar um Þýskaland. Samhliða því verður ráðist í markaðssetningu, með áherslu á íslenskan uppruna útivistarfatnaðarins. Viðtökur þýskra viðskiptavina ráða framhaldinu, en áætlanir gera ráð fyrir að innan þriggja ára verði Cintamani útivistarfatnaðurinn til sölu í 205 verslunum í Þýskalandi.