Inga Þórsdóttir tekur við af Sigurði Guðmundssyni sem forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla íslands.

Inga lauk doktorsprófi í klínískri næringarfræði frá Gautaborgarháskóla í Svíþjóð árið 1989 og hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín.

Inga var prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðiskor Raunvísindadeildar Hí frá 1997-2008 eða þangað til sú deild varð sjálfstæð innan Heilbrigðisvíndasviðs.