Brynhildur S. Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins GG verk ehf.

Brynhildur er með BA í HHS (hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði), auk M.Sc. gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á stjórnun og stefnumótun.

Hún lét nýverið af störfum sem framkvæmdastjóri Hagsýn bókhalds- og rekstrarþjónustu, en hún hefur áralanga reynslu í rekstrarráðgjöf, rannsóknum á sviði viðskiptafræði auk verkefnastjórnunar. Þá er hún sitjandi varaþingmaður Bjartrar framtíðar og hefur verið gjaldkeri flokksins frá stofnun.