Nýr framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Sólrún Halldóra Þrastardóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Stúdentaráðs fyrir starfsárið 2012-2013 og mun hún taka við störfum af Baldri Frey Ólafssyni. Sólrún útskrifaðist með BS í hagfræði í febrúar síðastliðinn. Hún er núverandi ritstjóri Stúdentablaðsins og hefur því starfað á skrifstofu Stúdentaráðs frá upphafi skólaárs. Sólrún var einnig blaðamaður á Viðskiptablaðinu sumarið 2011.