Norðmaðurinn Erik Solér hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá Intellecta. Hann mun veita ráðgjöf á sviði þjálfunar æðstu stjórnenda og í eflingu liðsheilda innan fyrirtækja og stofnana.

Vegna öflugra tengsla Eriks á sviði stjórnendaleitar í Skandinavíu mun hann einnig sinna slíkum verkefnum fyrir erlend fyrirtæki sem huga að rekstri á Íslandi og fyrir íslensk fyrirtæki sem huga að rekstri í Evrópu.

Frá árinu 1993 hefur Erik rekið eigið ráðgjafafyrirtæki í Ósló. Frá 2010 og þar til nýlega var hann framkvæmdastjóri og íþróttastjóri hjá knattspyrnuliðinu Red Bull í New York. Erik er menntaður sálfræðingur frá Óslóarháskóla.