Björgvin Guðmundsson hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins og tekur við stjórn blaðsins í dag af Sigurði Má Jónssyni, sem lætur af störfum.

Björgvin hefur verið aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins frá því í október 2009. Þar áður var hann fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, fréttastjóri á Fréttablaðinu og ritstjóri Markaðarins, vikublaðs Fréttablaðsins um viðskipti.

Viðskiptablaðið þakkar Sigurði Má Jónssyni fyrir samstarfið og vel unnin störf í þágu blaðsins.