Nýr staður á vegum Serrano veitingakeðjunnar var opnaður í vikunni á nýrri N1 bensínstöð á Bíldshöfða.

Þetta er fimmti Serrano staðurinn í Reykjavík en mexíkóska gúmmulaðið er einnig að finna í Kringlunni, Smáralind, N1 á Hringbraut og í Dalshrauni í Hafnarfirði.

Á Serrano er hægt að velja á sitt eigið burrito og því auðvelt að setja heilsuna í forgang, nú eða ekki og velja bara nógu mikið af sósum og osti.