Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) þann 10. maí síðastliðinn ásamt því að nýr framkvæmdastjóri félagsins var kynntur til starfa. 

Anna Margrét Steingrímsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri FVH af Telmu Eir Aðalsteinsdóttur. Anna Margrét er með MSc gráðu í þjónustustjórnun frá Háskóla Íslands ásamt því að hafa áður lokið BSc gráðu frá sama skóla í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum.

Hún hefur reynslu af verkefna- og þjónustustjórnun og starfar sem flugfreyja hjá Icelandair. Anna starfaði áður hjá Sjóvá í einstaklingsráðgjöf og þar áður sem flugfreyja hjá Wow air. Eiginmaður Önnu er Hilmar Þór Hilmarsson og eiga þau tvo syni. 

Tveir koma nýir inn í stjórn félagsins, þau Hulda Hallgrímsdóttir og Sigurður Tómasson sem taka við af Bjarna Herrera og Þórunni Helgadóttur sem víkja úr stjórninni. 

Stjórn FVH skipa því:

  • Lára Hrafnsdóttir formaður
  • Tryggvi Másson varaformaður 
  • Gylfi Þór Sigurðsson
  • Harpa Rut Sigurjónsdóttir
  • Hálfdán Steinþórsson
  • Hjalti Harðarson
  • Hulda Hallgrímsdóttir
  • Rut Kristjánsdóttir
  • Sigurður Tómasson 
  • Þórarinn Hjálmarsson. 

FVH er félagsskapur háskólamenntaðs fólks í viðskipta- og hagfræði auk áhugafólks um fræðin. Félagið stendur fyrir reglulegum viðburðum með áherslu á málefni líðandi stundar, endurmenntun og eflingu tengslanets. FVH framkvæmir einnig kjarakönnun meðal viðskipta- og hagfræðinga ásamt því að halda út innra svæði fyrir félagsmenn.