Mikill samdráttur varð í nýskráningu ökutækja eftir 17. mars sl. en þann dag féll krónan um 8,12%. Umferðarstofa bendir á þetta á vef sínum.

„Þetta er stærsta gengisfall íslensku krónunnar sem sést hefur á þessu ári en í heildina féll gengi krónunnar um tæplega 20% í mars mánuði. Í kjölfarið varð mikill samdráttur í nýskráningu ökutækja í samanburði við árið á undan,“ segir á vef Umferðarstofu.

„Fram að 17. mars hafði heildaraukning nýskráninga árið 2008 verið 26,1% meiri en á sama tíma í fyrra. Frá þeim degi til 18. júlí s.l. fækkað nýskráningum hinsvegar um 34,5% að meðaltali. Það má því segja að 17. mars sé upphafstími mikils samdráttar í nýskráningu ökutækja á þessu ári.“