Atvinnuleysi mældist 6,7% í Bandaríkjunum í nýliðnum mánuði. Þetta er óbreytt staða á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum um atvinnuþátttöku vestra sem birtar voru í dag. Breska dagblaðið Financial Times segir stöðuna aðeins betri en búist var við en svartsýnisraddir töldu að atvinnuleysi myndi aukast lítillega.

Blaðið bendir jafnframt á að þetta sé í samræmi við væntingar bandaríska seðlabankans.