Stjórn Icelandair Group leggur til fyrir aðalfund félagsins að stjórn og nefndarlaun verði óbreytt. Sigurður Helgason, formaður stjórnar, mun því samkvæmt fá áfram 550 þúsund krónur á mánuði fyrir vinnu sína en stjórnarmenn 275 þúsund krónur á mánuði.

Þá hljóða tillögurnar upp á að varaformaður stjórnar Icelandair Group fái 412.500 krónur á mánuði, varastjórnarmaður fái 137.500 krónur. Þá er lagt til að nefndarmenn í undirnefndum fái 100 þúsund krónur á mánuði, formaður endurskoðunarnefndar fái 225 þúsund krónur og formaður starfskjaranefndar 125.000 krónur á mánuði.

Starfskjarastefna Icelandair Group .