Stjórn Samtaka fjárfesta er óbreytt frá fyrra ári, en á aðalfundi samtakanna í dag var kosið í stjórn þeirra. Allir sitjandi stjórnarmenn buðu sig fram að nýju en auk þeirra buðu þeir Arnar Sigurðsson og Hjalti Baldursson sig fram í stjórn samtakanna.

Samkvæmt heimildum vb.is var sigur sitjandi stjórnar nokkuð afgerandi, en stjórnarmenn fengu á bilinu 70-80 atkvæði hver. Þeir Hjalti og Arnar munu hafa verið töluvert frá því að ná kjöri. Ekki mun hafa verið um átakafund að ræða, heldur fór hann fram í friði og spekt. Mæting var töluvert betri en í fyrra og hafa framboð Arnars og Hjalta væntanlega ráðið töluverðu þar um.

Stjórn samtakanna skipa því sem fyrr þau Bolli Héðinsson, Rúna Hauksdóttir, Halldór Þór Halldórsson, Soffía Hilmarsdóttir og Vilhjálmur Bjarnason.