Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum.

Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum að nokkuð hafi dregið úr hagvexti á fyrri hluta ársins en þróunin hafi þó verið í meginatriðum í samræmi við ágústspá Peningamála. Verðbólga, sem mælist nú 1,8%, hafi verið undir markmiði í átta mánuði samfleytt og horfur séu á minni verðbólgu næstu mánuði en spáð var í ágúst. Segir einnig að verðbólguvæntingar hafi þokast nær markmiði að undanförnu en langtímavæntingar séu enn nokkuð yfir því og gjaldeyrisinnstreymi hafi jafnframt haldið áfram en gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans hafi stuðlað að stöðugleika krónunnar.

Þá segir Seðlabankinn að aðhald peningastefnunnar hafi aukist meira en áður hafi verið búist við samfara hraðari hjöðnun verðbólgu og lækkun verðbólguvæntinga. Nokkur óvissa sé þó um túlkun haggagna vegna breyttra uppgjörsaðferða þjóðhagsreikninga sem auki tímabundið vandann við mat á æskilegu taumhaldi peningastefnunnar. Segir að lokum að kröftugur vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði gætu eftir sem áður leitt til aukins verðbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir Seðlabankans þyrftu að hækka.