Oddný G. Harðardóttir, fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, ætlar að bjóða sig fram í 1. sæti í forvali flokksins fyrir Suðurkjördæmi í næsta mánuði. Hún varð fjármálaráðherra um síðustu áramót en stóð upp úr ráðherrastólnum um síðustu mánaðamót þegar Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra, sneri aftur úr fæðingarleyfi og tók við embætti Oddnýjar.

Oddný opnar kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ á föstudag.