„Við leggjum mikið uppúr því að það sé skemmtilegt að vinna hjá Nova, að Nova sé skemmtilegasti vinnustaður í heimi,“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson, markaðsstjóri Nova. Mikið fjör var hjá fyrirtækinu í gær en þá var ofurhetjudagurinn haldinn í tilefni af kosningu um starfsmann mánaðarins.

Starfsmaðurinn er valinn með því að starfsfólk sendir inn hrós, flestir fleiri en eitt, til samstarfsmanna sinna sem er svo sent áfram á þann sem fær hrósið. Að lokum eru talin saman atkvæðin sem úrskurða hver starfsmaður mánaðarins er.

Allir starfsmenn Nova mættu í búning í dag og var dagurinn fullur af gleði og flissi yfir búningunum sem starfsfólk fyrirtækisins klæddist.

Hér að neðan má sjá nokkra af búningunum á ofurhetjudeginum.

Ofurhetjudagur Nova.
Ofurhetjudagur Nova.

Ofurhetjudagur Nova.
Ofurhetjudagur Nova.

Ofurhetjudagur Nova.
Ofurhetjudagur Nova.

Ofurhetjudagur Nova.
Ofurhetjudagur Nova.