OKG ehf. (áður Opin Kerfi Group) mun ekki greiða afborgun eða vexti af skuldabréf sem gefið var út í nafni félagsins en bréfið er á gjalddaga í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá OKG til Kauphallarinnar en félagið er útgefandi skuldabréfs með heitið OPKF 01 1, en sem fyrr segir er skuldabréfið á gjalddaga í dag, það er jafnframt lokagjalddagi. Þá eru afborganir og vaxtagreiðslur sem féllu í gjalddaga þann 20. apríl síðastliðinn eru einnig ógreiddar.

Í tilkynningunni kemur fram að ekki verði greitt af skuldabréfinu þar sem viðræður standa enn yfir við kröfuhafa félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins með það að markmiði að tryggja fullar efndir.