Icelands Recovery - Ráðstefna Hörpu
Icelands Recovery - Ráðstefna Hörpu
© BIG (VB MYND/BIG)
Ólafur Ragnar Grímsson ætlar að hefja formlega kosningabaráttu með fundi í Grindavík á morgun. Verður Dorrit Moussaieff þétt við hlið hans í baráttunni, og þau bjóða sig fram sem teymi, eins og sjá má á slóð kosningasíðunnar olafurogdorrit.is þar sem finna má slóð á Facebook síðu þeirra beggja. Ólafur segist ætla að nýta sér samfélagsmiðla.

Ólafur Ragnar sagði í viðtali við Sigurjón M. Egilsson á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að hann eigi afmæli á morgun og þau Dorrit brúðkaupsafmæli. Því ætli heimamenn að slá upp afmæliskaffi fyrst það hitti svo á að hefji baráttu sína þar á sjálfan afmælisdaginn.