Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átti í gær fundi með Shimon Peres forseta Ísraels og Mahmoud Abbas forseta heimastjórnar Palestínu.

Á fundunum var fjallað um friðarhorfur í Mið-Austurlöndum, samningaviðræður undanfarna mánuði og hvernig sagan sýnir að smá ríki geti stuðlað að sáttargjörð og friðarsamningum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta.

Þar kemur fram að fundurinn með Shimon Peres var í gærmorgun í forsetahöllinni í Jerúsalem en síðdegis fór forseti Íslands til Ramallah, höfuðborgar Palestínusvæðanna, og hitti Mahmoud Abbas í höfuðstöðvum heimastjórnarinnar.

Það er í fyrsta sinn sem forseti Íslands kemur til heimastjórnarsvæða Palestínumanna, samkvæmt tilkynningunni.

Á fundi forseta Íslands og Shimon Peres var fyrst fjallað um árangur Íslands í viðskiptum á alþjóðavettvangi og horfurnar í efnahagsmálum þjóðarinnar, aukið samstarf Íslendinga við ríki í Mið-Austurlöndum, heimsóknir forseta Íslands til Abu Dhabi og Katars fyrr á þessu ári og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Þá kemur fram að Mahmoud Abbas forseti heimastjórnar Palestínumanna bauð Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands að koma til fundar við sig í höfuðstöðvum heimastjórnarinnar í Ramallah á Vesturbakkanum.

Á fundi þeirra lýsti Abbas mikilli ánægju með heimsókn sína til Íslands í vor og fagnaði aukinni samvinnu Íslendinga við Palestínumenn. Hann bauð forseta Íslands að koma innan tíðar í nokkurra daga heimsókn til heimastjórnarsvæða Palestínumanna til að kynna sér aðstæður, viðhorf íbúanna og sögufræga staði kristninnar.

Abbas fjallaði síðan ítarlega um friðarviðræðurnar sem fram hafa farið undanfarna mánuði. Enda þótt stjórnmálaástandið í Ísrael og kjör á nýjum forsætisráðherra þar kynni að tefja gang mála taldi Abbas að verulegur árangur hefði nú þegar náðst í mörgum málaflokkum. Skapast hefði grundvöllur sem hægt væri að byggja á og gæti leitt til formlegra friðarsamninga.

Mikilvægt væri að nota næstu mánuði vel og hvorki kosning á nýjum forsætisráðherra í Ísrael né nýjum forseta Bandaríkjanna mætti koma í veg fyrir að tækifærin sem nú hefðu skapast yrðu nýtt til fullnustu.

Einnig ræddu forseti Íslands og Abbas um framlag smárra þjóða til friðarviðræðna og jákvæðrar þróunar í alþjóðamálum. Samningarnir í Ósló á sínum tíma, nýlegir samningar sem gerðir voru í Katar um frið í Líbanon og fundur Reagans og Gorbasjovs í Reykjavík væru allt lærdómsrík söguleg dæmi. Palestínumenn hefðu mikinn áhuga á að nýta sér framlag smárra þjóða sem vildu stuðla að friði.