Fjármálagerningar útgefnir af Straumi-Burðarás Fjárfestingabanka hf. (Straumur) hafa verið færðir á  Athugunarlista vegna óvissu um framtíð útgefanda, með vísan til tilkynningar félagsins frá því í morgun þar sem fram kemur að Fjármálaeftirlitið hafi tekið yfir stjórn félagsins.

Áfram verður opið fyrir viðskipti með fjármálagerninga útgefanda en ákvörðun þess efnis verður tekin til endurskoðunar fyrir opnun markaða á morgun samkvæmt tilkynningu frá Kauphöllinni.