Reykjavíkurborg hefur opnað svæði á vefsíðunni Reykjavik. is, þar sem hægt verður að rýna í fjármál borgarinnar. Á vefsíðunni verður hægt að skoða tekjur fagsviða og miðlægrar stjórnsýslu og útgjöld niður á einstaka birgja, sem fagsvið og skrifstofur Reykjavíkurborgar skipta við.

Um er að ræða fyrsta skref í birtingu fjármálagagna en Reykjavíkurborg hyggst birta enn ítarlegri fjármálaupplýsingar og gefa þau jafnframt út sem opin gögn á næstu misserum