Opnað hefur verið fyrir innsendingar í Lúður 2012 á sérstöku vefsvæði Outcome sem sett er upp fyrir keppnina. Tekið er á móti innsendingum til 14.janúar nk.

Keppnin er opin öllum þeim sem stunda gerð og/eða dreifingu auglýsinga á Íslandi. Íslensku auglýsingaverðlaunin, Lúðurinn, verða afhent við hátíðlega athöfn 1. mars 2013. Veitt eru verðlaun fyrir athyglisverðustu auglýsinguna og árangursríkustu auglýsingaherferðina.