Fjórtán innlendir og erlendir fjárfestar tóku þátt í hlutafjáraukningu ORF Líftækni upp á 300 milljónir króna sem nú er lokið. Hlutafjáraukningin var gerð í samstarfi við Arctica Finance. Fram kemur í tilkynningu að umframáskrift hafi numð 13,7%.

Orf Líftækni
Orf Líftækni
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Hluthafar ORF Líftækni eftir hlutafjáraukninguna eru um 80 talsins.

Fram kemur í tilkynningunni að sala á framleiðsluafurðum ORF Líftækni hafi margfaldast á síðustu misserum. Það skilaði félaginu 360 milljóna króna tekjum í fyrra sem er þreföldun á milli ára. Gert er ráð fyrir að tekjurnar tvöfaldist á þessu ári.

Sif Cosmetics, dótturfélag ORF Líftækni, sér um markaðssetningu á húðvörum með frumuvökum sem framleiddir eru af ORF Líftækni. EGF húðvörurnar eru mest seldu húðvörurnar á Íslandi í dag og BIOEFFECT® húðvörulína fyrirtækisins hefur hlotið mjög góðar viðtökur í Evrópu. Þá er mikill áhugi hjá stórum líftæknifyrirtækjum á ISOkine™ vaxtarþáttum fyrirtækisins, sem notaðir eru við læknisfræðilegar rannsóknir, en ORF Líftækni býður upp á meira úrval af vaxtarþáttum sem framleiddir eru í plöntum en nokkurt annað fyrirtæki í heiminum.