Flestir hlutabréfamarkaðir hækkuðu lítillega í Evrópu í dag þrátt fyrir að framleiðslu- og námufyrirtæki hefðu lækkað nokkuð að sögn Reuters fréttastofunnar.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 0,3% en hefur lækkað um 0,8% í vikunni.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan að vísu um 0,8%. Í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 0,1% en í Frankfurt stóð DAX vísitalan í stað.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 0,7% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 0,4%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 1,2%, í Stokkhólmi stóð OMXS vísitalan í stað og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 0,6%.