Þorsteinn Már Baldvinsson, útgerðarmaður á Akureyri, er ótvíræður skattakóngur á Íslandi fyrir árið 2008. Þetta sýnir lokaútgáfa skattskrár fyrir tekjuárið 2008 sem nú hefur verið birt hjá skattstjórum úti um land allt.

Þorsteinn Már greiddi tæpar 170 milljónir króna í skatt á árinu og má því ætla að tekjur hans hafi á því herrans ári verið um 55 milljónir króna á mánuði. *

Sem kunnugt er liggja álagningaskrár skattstjóra opinberlega fyrir 1. ágúst ár hvert. Eftir að álagningaskráin hefur verið birt hafa einstaklingar frest til þess að skila inn beiðni um leiðréttingu í formi kæru. Það er því fyrst nú sem skattskrá fyrir tekjuárið 2008 liggur fyrir eins og hún er í raun og veru.

Svo virðist sem Þorsteinn Már hafi ekki nýtt sér rétt til leiðréttinga því tölur um skattgreiðslur hans eru þær sömu og voru birtar í ágúst sl.

Hreiðar Már greiddi um 800 milljónir í skatt á 3 árum

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrv. forstjóri Kaupþings, kemur næstur á eftir Þorsteini Má en hann greiddi um 157,3 milljónir króna í skatt árið 2008, þar af um 56 milljónir króna í útsvar en hann var þá með lögheimili í Reykjavík. Ætla má að laun Hreiðars Más hafi því verið um 40,5 milljónir króna á mánuði það ár.

Tölur um skattgreiðslur Hreiðars Más eru einnig óbreyttar frá því í ágúst. Þá má geta þess að á árunum 2006–2008 greiddi Hreiðar Már um 830 milljónir króna í skatt til hins opinbera, þar af tæpar 300 milljónir króna í útsvar. Mest greiddi hann árið 2006 eða um 400 milljónir króna.

------------

Viðbót og leiðrétting:

Ranglega var sagt til um árslaun Þorsteins Más í þessari frétt.

Þorsteinn Már greiddi tæpar 170 milljónir króna í skatt á árinu og sagt var í frétt blaðsins að því mætti ætla að tekjur hans á árinu hefðu numið um 55 milljónum króna á mánuði. Sú tala byggðist á útreikningum Viðskiptablaðsins.

Hins vegar hafði Þorsteinn Már, í lok júlí á síðasta ári, sent fjölmiðlum tilkynningu vegna umfjöllunar um álagningu opinberra gjalda. Þar kom skýrt fram að tæplega 70% þeirra skattgreiðslna sem hann hafi greitt á árinu 2008 væru tilkomnir vegna flutnings á hlutabréfum í Samherja hf. sem voru í hans persónulegu eigu yfir í sérstakt félag í eigu hans og Helgu Steinunnar Guðmundsdóttur.

„Þannig er ekki um innleystan hagnað að ræða fyrir mig og hafa engir fjármunir færst til mín í tengslum við flutninginn,“ sagði Þorsteinn Már í tilkynningunni.

„Einu peningagreiðslurnar tengdar þessu máli eru því greiðsla á fjármagnstekjuskatti í ríkissjóð. Með því að flytja eignarhaldið á bréfunum yfir í sérstakt félag bar mér að greiða skatt af ímynduðum söluhagnaði sem myndast vegna áætlaðrar verðmætaaukningar á hlutabréfum í Samherja hf. yfir langt árabil.“

Þá kom jafnframt í tilkynningunni fram að umrædd bréf hefðu verið á nafni Þorsteins sl. 27 ár og að hann hefði í hyggju að eiga þau áfram í gegnum umrætt félag.

Ekki var minnst á þessa tilkynningu við vinnslu fyrrnefndar frétta í blaðinu þann 6. maí sl. en eins og sjá má á henni eru útreikningar blaðsins um mánaðarlaun Þorsteins Más rangir. Á því er beðist velvirðinga og það um leið leiðrétt.