Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, hefur óskað eftir leyfi frá störfum til 1. september 2009 vegna veikinda. Þórunn J. Hafstein, skrifstofustjóri dómsmála- og löggæsluskrifstofu ráðuneytisins, hefur verið sett ráðuneytisstjóri meðan á leyfi hans stendur.

Þá hefur Bryndísi Helgadóttur, settum skrifstofustjóra lagaskrifstofu, verið falið að vera staðgengill ráðuneytisstjóra til sama tíma.