Heilbrigðistæknifyrirtækið Össur hefur hlotið Gullmerkið í jafnlaunaúttekt PricewaterhouseCoopers (PWC) eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækin. Úttektin greinir kynbundinn launamun innan fyrirtækja og metur hvort fyrirtæki greiði báðum kynjum sömu laun fyrir sambærileg störf. Össur fékk engar athugasemdir við úttektina og þurfti ekki að gera neinar úrbætur eða breytingar til þess að hljóta Gullmerkið. Jafnlaunaúttektin greinir upplýsingar um raunverulegan launamun kynjanna þegar tekið hefur verið tillit til þeirra þátta sem mest hafa áhrif á laun s.s. menntun, aldur, starfsaldur, starfaflokk og vinnustundir.

Til að hljóta Gullmerkið þurfa fyrirtæki að hafa 3,5% eða minni launamun. Í niðurstöðum úttektarinnar er hlutfall hjá Össuri talið óverulegt og ekki hægt að greina að Össur sé að greiða kynjunum mismunandi laun fyrir sambærileg störf.

„Við erum mjög stolt af því að hljóta Gullmerkið enda er það markmið Össurar að hafa engan óútskýrðan launamun á milli kynja. Við teljum að úttektir sem þessar séu mikilvægur hluti þess að bjóða konum jafnt sem körlum samkeppnishæft og hvetjandi vinnuumhverfi. Það er alveg skýrt í mínum huga að með því að starfsfólk Össurar njóti jafnra tækifæra óháð kyni, aldurs og þjóðernis séum við að nýta mannauð fyrirtækisins á sem árangursríkastan hátt," segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar um Gullmerkið.