Apple ætlar að framleiða 20% minna af næstu gerð iPhone símana sinna. Það þykir benda til þess að fyrirtækið óttist það að salan á iPhone símunum muni dragast saman. Þetta kemur fram á vef CNN .

Á síðasta ári framleiddi Apple 100 milljónir eintaka af iPhone 8, iPhone 8 plus og iPhone X, en nú ætla þeir að framleiða 80 milljónir eintaka í nýju iPhone línunni.

Fjárfestar hafa lengi haft áhyggjur af því að salan á iPhone hætti að aukast jafn mikið milli ára og hún hefur gert undanfarin ár. Apple seldi rúmlega 52 milljónir eintaka af iPhone fyrstu þrjá mánuði ársins og var það aðeins 3% aukning í sölu miðað við árið á undan.