Gunnar Sigurðsson fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Akraness lagði fram bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag. Þar harma þeir að núverandi meirihluti skuli gera það að forgangsmáli að draga til baka margar af þeim aðhaldsaðgerðum sem bæjarstjórn Akraness samþykkti samhljóða að fara í fyrir og eftir hrun.

Í ljósi aðstæðna megi ætla að næsta ár verði ekki eins gott og síðasti ársreikningur sýndi og einnig rekstraryfirlit fyrri hluta þess árs. Fyrirsjáanlegt sé að ekki komi arðgreiðslur frá Orkuveitu Reykjavíkur og einnig sé óvissa í atvinnumálum og auknum útgjöldum bæjarsjóðs.