Páll Magnússon, sem nýlega var ráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, hefur tilkynnt fjármálaráðherra að hann muni ekki taka við starfinu.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Páli sem hann sendi fjölmiðlum fyrir stundu.

Þar kemur fram að þann 30. september sl. hafi hann verið ráðinn í starf forstjóra Bankasýslunnar. Stjórn Bankasýslunnar óskaði í gær eftir lausn frá störfum vegna utanaðkomandi afskipta af ráðningunni.

„Með afsögn stjórnar Bankasýslunnar eru brostnar allar forsendur þess að ég komi til starfa sem forstjóri stofnunarinnar,“ segir Páll í yfirlýsingunni.

„Þar er óvinnandi verkefni fyrir hluteigandi að sitja undir pólitískum afskiptum, en í raun hafa stjórnmálamenn krafist þess að lögum og reglum um opinberar ráðningar verði vikið til hliðar í málefnum Bankasýslunnar. Með vísan til þessa hef ég í dag tilkynnt fjármálaráðherra að ég muni ekki taka við starfi forstjóra Bankasýslunnar.“