Þó að enn séu tveir mánuðir í páskana þá fóru starfsmenn Nóa Síríus að framleiða páskaegg um leið og þeir sneru aftur til vinnu eftir jólafrí. Enda mikið fyrir stafni því Nói Síríus framleiðir gríðarlegt magn af páskaeggjum ár hvert.

Í fyrra voru til dæmis framleidd í kringum 600 þúsund súkkulaðiegg fyrir páskana og er það svipuð framleiðsla og áður. Samkvæmt upplýsingum frá Nóa Síríus eru það litlu eggin sem seljast best fyrir páskana en byrjað er að dreifa nokkrum tegundum í búðir þessa dagana, súkkulaðiunnendum eflaust til mikillar gleði.