Peningamagn í umferð hefur aukist um rúma 2,9 milljarða króna frá upphafi þessa árs. Nú er um 35,3 milljarðar króna af seðlum og mynt í umferð samkvæmt nýjum hagtölum Seðlabankans.

Samkvæmt tölum Seðlabankans um bankakerfið hafur aldrei verið jafn mikið fjármagn og nú í umferð en tölur bankans ná aftur til ársins 1994. Til gamans má geta að í janúar 1994 voru um 3,4 milljarðar króna í umferð.

Peningamagn í umferð jókst um rúmar 930 milljónir í nóvember sl. en hafði dregist saman um litlar 8 milljónir króna í október. Þá hafði peningamagn í umferð aukist um rúma 2 milljarða á fjórum mánuðum frá því í byrjun sumars á þessu ári.

© vb.is (vb.is)

Eins og sjá má á myndinni hér að ofan jókst magn peninga í umferð gífurlega í október 2008, eða um tæp 90% þegar magn peninga í umferð fór frá því að vera tæpir 12,6 milljarðar króna í september 2008 í það að vera um 23,7 milljarðar króna í október sama ár. Hefðbundið magn peninga í umferð á milli 11 og 13 milljarðar króna fram að hruni bankanna í október s.l.

Þá minnkaði peningamagn í umferð fram á vorið 2009 en hefur síðan þá aukist jafnt og þétt að undanskildum lækkunum í byrjun árs bæði 2010 og 2011.

Sem fyrr segir eru nú um 35,3 milljarðar króna í umferð og hefur aldrei verið meira en í lok nóvember á þessu ári. Á sama tíma í fyrra voru um 29,5 milljarðar króna í umferð en peningamagn í umferð jókst verulega í desember í fyrra.