Lítillega hefur dregið úr peningamagni í umferð frá áramótum eða um rúma 2,8 milljarða króna. Samkvæmt nýjum tölum Seðlabankans voru um 38 milljarðar króna af lausafé í umferð í febrúar samanborið við 40,7 milljarða króna í desember sl. Þá hafði peningamagn í umferð aldrei verið meira samkvæmt tölum frá Seðlabankanum sem ná aftur til ársins 1994. Til gamans má geta að í janúar 1994 voru um 3,4 milljarðar króna í umferð. Rétt er að taka fram að hér er átt við lausafé, seðla og myntir, í umferð.

Peningamagn í umferð hefur nú aukist um 1,5 milljarða króna á milli ára en um 26,5 milljarða króna frá því í febrúar 2008. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan jókst magn peninga í umferð gífurlega í október 2008, eða um tæp 90%. Þá fór magn peninga í umferð frá því að vera tæpir 12,6 milljarðar króna í september 2008 í það að vera um 23,7 milljarðar króna í október sama ár. Hefðbundið magn peninga í umferð á milli 11 og 13 milljarðar króna fram að hruni bankanna í október 2008. Síðan þá hefur peningamagn í umferð aukist um 160%.

Nokkuð dró úr peningamagni í umferð í ársbyrjun 2009 en í júní sama ár jókst peningamagn í umferð á ný og hefur, eins og sést á myndinni hér að neðan, fari stighækkandi síðan þá. Peningamagn í umferð hefur náð hámarki undir lok hvers árs frá árinu 2009 og lækkað aftur í janúar árið eftir, en síðan aukist á ný fram undir næstu áramót.

© vb.is (vb.is)