Petrea I. Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Markaðssviðs hjá Símanum, sem er nýtt svið hjá símafélaginu. Samfara þessu starfi tekur hún sæti í framkvæmdastjórn Símans, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Petrea er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.  Síðasta árið hefur Petrea unnið sem forstöðumaður Markaðar hjá Símanum.  Áður vann hún m.a. sem framkvæmdastjóri Markaðssviðs á Skjánum og við ýmis sérfræðings- og stjórnunarstörfum hjá Símanum.  Petrea er í sambúð með Benedikt K. Magnússyni partner hjá KPMG og eiga þau eina dóttur.