Pétur Jóhann Sigfússon, skemmtikraftur með meiru, hefur ráðið sig til framleiðslufyrirtækisins Stórveldisins. Fyrsti dagurinn í nýju vinnunni var í dag.

„Það er fullt af spennandi hlutum að gerast. Það var kominn tími á breytingu fyrir mig og spennandi fólk að vinna hér og spennandi hlutir framundan,“ segir Pétur Jóhann í samtali við Viðskiptablaðið. Nýtt starf verður fjölbreytt að sögn Péturs „Þá felur það í sér nýjar áskoranir, fyrir framan og aftan myndavélarnar,“ segir Pétur Jóhann.

Og nýja starfið leggst vel í Pétur Jóhann. „Það er bara almenn hamingja og gleði. Þetta eru náttúrlega allt saman vinir manns að vinna hérna. Fólk sem ég hef unnið með í gegnum tíðina,“ segir Pétur Jóhann.