Flugfélagið og ferðaþjónustufyrirtækið Primera Air ætlar að hefja flug frá Keflavík til Oslóar í Noregi í desember og fljúga á milli fram á vor. Til að byrja með verður sérstök jólaferð í boði en þá verður flogið frá Keflavík 20. desember með heimkomu á Nýársdag. Sömuleiðis verður flogið frá Olsó 18. desember og til baka aftur 3. janúar.

Fram kemur í tilkynningu frá Primera Air að í janúar verði flogið á milli Keflavíkur og Oslóar aðra hvora viku og vikulega í febrúar og mars.

Ferðin hvora leið kostar frá 9.900 krónum með sköttum.

Primera Air rekur sjö nýlegar Boeing-vélar og  flytur árlega um 800.000 farþega frá stærstu borgum í Skandinavíu til um 55 áfangastaða í 25 löndum.