Pylsuvagninn á Selfossi skilaði 8,2 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en eigendur Pylsuvagnsins greiddu sér út 2,7 milljónir í arð á árinu. Eigið fé Pylsuvagnsins nam um 26,8 milljónum króna í lok ársins en helsta eign félagsins er vagninn sjálfur auk bankainnstæða.

Vagninn er metinn á um 14 milljónir í bókum félagsins en heildareignir eru um 34,9 milljónir króna. Það er Ingunn Guðmundsdóttir sem er eigandi Pylsuvagnsins en hún tók við vagninum sumarið 1984 en þá stóð vagninn örlítið nær Ölfusá en nú er.