Forstjóri Arctic Adventures, Styrmir Þór Bragason, segir sameiningu fyrirtækja í ferðaþjónustu nauðsynlega. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Fyrirtækið hefur ákveðið að endurráða 20% af því starfsfólki sem áður vann hjá fyrirtækinu. Í lok apríl sagði Arctic Adventures upp öllum 152 starfsmönnum sínum vegna áhrifa COVID-19 á reksturinn.

Styrmir segir að nú sé áætlað að veltan verði 30-35% af því sem hún var í fyrra. „Þetta er betra en maður átti von á. Þetta er allt að þróast í rétta átt en auðvitað miklu minna en áður. Ef maður horfir einn og hálfan mánuð aftur í tímann er þetta mun betra en búast mátti við," segir Styrmir í samtali við Morgunblaðið.

Hann segir jafnframt að í ljósi þeirra erfiðleika sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir sé þörf á samþjöppun í greininni til þess að minnka yfirstjórnunarkostnað.