Nafnávöxtun Gildis-lífeyrissjóðs árið 2008 var neikvæð um 14,8%, raunávöxtun var neikvæð um 26,7% að því er kemur fram í frétt sjóðsins en ársfundur hans var í gær. Hrein eign til greiðslu lífeyris var 208,9 milljarðar króna í árslok og lækkaði um 29,3 milljarða króna eða um 12,3% frá árslokum 2007. Fjárfestingartekjur voru neikvæðar um 34,2 milljarða króna.

Meðalraunávöxtun sjóðsins sl. 5 ár er 2,1% og sl. 10 ár 3,3,% en áætluð meðalraunávöxtun allra lífeyrissjóða er 1,5% fyrir 5 ár og 2,2% fyrir 10 ár.  Skuldbindingar sjóðsins voru 13% hærri en eignir í lok árs 2008 samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt.

Samþykkt var að lækka áunnin réttindi um 10%. Samt sem áður hafa lífeyrisréttindi sjóðfélaga aukist um tæplega 6% umfram vísitöluhækkanir frá árinu 2006 en lífeyrisgreiðslur eru verðtryggðar m.v. vísitölu neysluverðs. Þá ber þess að geta að frá ársbyrjun 2006 til mars 2009 hafa lífeyrisgreiðslur hækkað um 40% þegar tekið hefur verið tillit til 10% lækkunar. Launavísitala hækkaði um 26% á sama tímabili.

Iðgjöld til sjóðsins á árinu 2008 voru 11,4 milljarðar króna og hækkuðu um um 12% frá fyrra ári.

Lífeyrisgreiðslur námu 6,7 milljörðum króna og hækkuðu um 14,8%.  Eignir sjóðsins skiptust þannig í lok árs 2008 að 56% voru í innlendum skuldabréfum, 2% í innlendum hlutabréfum, 10% í innlánum og 32% í erlendum verðbréfum.

Alls 45.185 einstaklingar greiddu iðgjöld til Gildis árið 2008.