Fasteignafélagið Reitir hefur tekið yfir fasteignafélög sem voru í rekstri Stefnis. Í tilkynningu til kauphallarinnar kemur fram að um sé að ræða fasteignir sem telji samtals um 34.000 fermetra og eru þær Hótel Borg, Borgartún 37, Guðrúnartún 10, Laugavegur 77, Fiskislóð 11, Skúlagata 17, Síðumúli 16-18 og Faxafen 5.

Fyrirhuguð kaup á Þingvallastræti 23 á Akureyri gengu ekki eftir þar sem forkaupsréttur að eigninni var nýttur af forkaupsréttarhafa. Heildarvirði kaupanna er samtals um 16.220 milljónir króna. Leigutekjur á ársgrunni nema um 1.215 milljónum og leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður Reita hækkar um 1.000 milljónir króna á ársgrundvelli.