Rekstrarhagnaður Atlantic Petroleum á öðrum ársfjórðungi var 50 milljónir danskra króna samanborið við 36 milljónir danskra króna árið áður.

Í tilkynningu frá félaginu segir Ben Arabo, forstjóri Atlantic Petroleum að síðasti ársfjórðungur hafi verið góður. Hann segir að annar ársfjórðungur hafi markað tímamót þar sem félagið hafi tekið stór vaxtaskref með yfirtökunni á Volantis. Áframhaldandi vöxtur er ráðgerður bæði með innri vexti og yfirtökum. Enginn viðskipti hafa verið með bréf Atlantic Petroleum eftir birtingu uppgjörsins.