Franski bílaframleiðandinn Renault hefur gert samning um að kaupa 25% hlut í rússneska bílaframleiðandanum Avtovaz sem m.a. framleiðir Lada. Avtovaz er stærsti framleiðandi bifreiða í Rússlandi, með um 70% markaðshlutdeild þar í landi.

Renault og Avtovaz ætla að endurhanna Lada frá grunni og gera gamla Síberíumustanginn að álitlegum kosti fyrir kaupendur í Evrópu og stefnan er að framleiða að minnsta kosti milljón Lödur á ári.