Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs til stækkunar áskuldabréfaflokki og stefnir að því aðtaka tilboðum að fjárhæð 2,5 milljarðar króna að nafnvirði. Ávöxtunarkrafa íútboðinu verður 3,90%. Reykjavíkurborg stækkaði umræddan skuldabréfaflokk um 2,5 milljarða króna að nafnvirði fyrr á árinu og er heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð alls 7,7 milljarða króna. Heimilt er að stækka skuldabréfaflokkinn um allt að 5,8 milljarða króna á árinu. Umsjón með sölu skuldabréfanna hefur MP banki.