Ríkisstjórn hefur samþykkt  tillögu viðskiptaráðherra um að íslenska ríkið muni hlaupa undir bagga með Landsbanka Íslands hf. til að tryggja að hann geti staðið við launaskuldbindingar sínar gagnvart starfsmönnum, sem ekki flytjast yfir í Nýja Landsbankann.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu.

Eins og kunnugt er, er rekstur Landsbanka Íslands hf. nú í höndum skilanefndar.

„Því er það í verkefni hennar að útfæra nánar þessa ákvörðun,“ segir í tilkynningunni.